Starfsáætlun 2011 - 2012 |  Klúbbastarf |  Reglur | 

Á döfinni


Opnunartími

Mánudagur
13:30 - 17:00
20:00 - 22:00

Þriðjudagur
13:30 - 17:00
20:00 - 22:00

Miðvikudagur
13:30 - 17:00
20:00 - 22:00

Fimmtudagur
13:30 - 17:00
Lokað á kvöldi

Föstudagur
13:30 - 17:00
20:00 - 22:00



Zelsiuzráð
Eitt bros á dag kemur skapinu í lag ;)


 

Félagsmiðstöðin Zelsiuz

Félagsmiðstöðin Zelsiuz hefur verið starfrækt síðan 1980 en aðstaðan hefur breyst mikið frá stofnun. Zelsiuz er staðsett í stóru húsnæði að Tryggvagötu 23 á Selfossi. Húsnæðið býður uppá mikla möguleika og er vel útbúið.

Zelsiuz er fyrst og fremst ætlað að bjóða unglingum í 8 – 10 bekk í Árborg upp á aðstöðu til að slaka á og koma saman og vinna að mismunandi verkefnum og áhugamálum. Zelsiuz vinnur einnig markvisst að forvarnarmálum og reynir að nota aðrar aðferðir en vanalega tíðkast . Þátttaka unglinga er frjáls og að mestu gjaldfrí og myndar því örðuvísi vinnuaðstöðu en í skyldunámi. Einnig vinnur Zelsiuz að því að tengja saman unglinga milli hverfa og þó megin áherslan sé lögð á hverfi innan sveitarfélagins þá er útilokar Zelsiuz ekki unglinga í öðrum hverfum og sveitarfélögum. Zelsiuz er einnig reglulega með opnanir og böll fyrir 5. – 7. bekk.

Vetraropnanir

Mándagur         13:00 – 16:30 / 20:00 – 22:00

Þriðjudagur      13:00 – 16:30 / 20:00 – 22:00

Miðvikudagur   13:00 – 16:30 / 20:00 – 22:00

Fimmtudagur   13:00 – 16:30 / Lokað um kvöld

Föstudagur      13:00 – 16:30 / 20:00 – 22:00

Helgar             Lokað 

Sumaropnanir      
Ekki hefur verið gengið frá sumaropnun fyrir 2011 

Stefna og starfsemi Zelsiuz

Til að einfalda og skýra stefnu og starfsemi Zelsiuz hefur stefnunni verið skipt upp í 6 greinar. Stefna Zelsiuz er endurskoðuð á hverju hausti.

1. grein- Zelsiuz stendur öllum unglingum í 8. – 10 bekk opin

Zelsiuz er staður unglinga og þjónustar fyrst og fremst unglinga í 8. – 10. bekk í sveitarfélaginu Árborg en unglingum úr öðrum sveitarfélögum er velkomið að kíkja í heimsókn. Einnig er reynt að vinna að samvinnuverkefnum með félagsmiðstöðvum í nágrenninu. Zelsiuz býður reglulega upp á opnanir fyrir 5.-7. bekk og eftir áramót er 7. bekk boðið á opið hús eitt kvöld í viku.

 

2. grein – Z – ráð hefur áhrif

Z – ráðið er hópur unglinga sem vinnur náið með starfsmönnum Zelsíuz við að reka félagsmiðstöðina. Þau fá hlutverk og er gefin ábyrgð í félagsmiðstöðinni og eru þau hvött til að taka frumkvæði og leggja sitt að mörkum við að skipuleggja starfsemi félagsmiðstöðvarinnar.

 

3. grein – Fjölbreytt starfsemi..

Húsnæði Zelsiuz er virkilega gott og býður upp á mikla möguleika. Því ætti að vera hægt að bjóða uppá fjölbreytta aðstöðu og reynt er að vinna að því að höfða vel til hópa sem standa örlítið út úr. Einnig er mikilvægt að Zelsiuz sé einnig sá staður þar sem unglingarnir geta komið og slakað á og blandað geði.

 

4.grein – Jafnrétti.

Zelsíuz stuðlar að auknu jafnrétti og ekki gert upp á milli hópa. Það getur oft verið erfitt en unglingarnir eru hvattir til að koma með athugasemdir og hugmyndir um hvernig er hægt að minnka mismunun og yfirgang ákveðinna hópa. Reynt er að halda öllum kostnaði niðri svo allir hafi möguleika á að taka þátt.

 

5. grein – Klúbbastarf

Zelsiuz býður uppá ýmsa klúbba sem eiga að vera uppbyggilegir og skemmtilegir. Forstöðumaður setur af stað 4 – 6 klúbba, íþróttaklúbb, stelpu- og strákaklúbba, Z – ráðið er síðan einnig er talið sem klúbbur. Reynt verður að koma af stað fjölmiðlaklúbb sem og spila og kvikmyndaklúbb. Unglingarnir geta einnig komið með sínar hugmyndir af klúbbum. Einnig verður boðið upp á námskeið sem geta þróast í klúbba. Þannig getur ljósmynda eða borðtennisnámskeið hæglega þróast í klúbb.

 

6. grein – Hreinskilni, ábyrgð og traust.

Mikið er lagt í það að mynda traust milli starfsfólks og unglinga. Það er gert með því að leggja mikið upp úr hreinskilni og eru lygar mjög illa liðnar. Starfsfólk verður einnig að vera hreinskilið og taka á hlutunum á sanngjarnan hátt þegar eitthvað kemur upp á. Einnig er mjög mikilvægt að unglingarnir fái ábyrgð svo þeir finni að þeir njóta trausts og virðingar hjá starfsfólki. Þessa ábyrgð og traust þarf að vinna sér inn og hægt er að tapa þessu trausti.

 

7. grein - Starfsáætlun

Á hverju hausti skal gerð starfsáætlun fyrir veturinn þar sem forstöðumaður setur fram markmið fyrir veturinn og áætlun. Þar skulu koma fram þeir dagskráliðir og þær nýjungar sem verða yfir veturinn. Þessi starfsáætlun skal vera aðgengileg á heimasíðu félagsmiðstöðvarinnar og vera kynnt fyrir foreldrum.

 

Unnið af Önnu Þorsteinsdóttir forstöðumanni tómstundahúsa.

 

Framtíðarsýn Zelsiuz

Í framtíðinni ætlar Zelsiuz að bjóða uppá fjölbreytta starfsemi sem getur höfðað til fjölmenns hóps unglinga sem eru virkir þátttakendur í skipulagningu Zelsiuz. Zelsiuz mun bjóða uppá gott forvarnarstarf og trúnaðarsvæði fyrir unglinga. Einnig á Zelsiuz að vera í góðu samstarfi við aðrar félagsmiðstöðvar bæði innanlands sem og utanlands. Markmið Zelsiuz er að efla sjálfstraust, ábyrgð og virkni unglinga í samfélaginu. Zelsiuz ætti því að stefna að því að hafa öflugt Z – ráð og eiga aðila í Ungmennaráði Samfés að minnsta kosti annað hvert ár.   


Fyrir neðan aðal krækjurnar, hér að ofan eru undirkrækjur sem innihalda nánari upplýsingar um, starfsáætlun, klúbba og reglur.

 

Spurningin
Hvað vantar í Zelsíuz?
Kvikmyndakvöld
Fræðsluerindi
Stelpukvöld
Strákakvöld
Diskótek
Date-kvöld
Ferðaklúbb
Pælingahóp
Áhugaverð námskeið
Annað
 
Skoða niðurstöður


Félagsmiðstöðin Zelsiuz, Austurvegur 2a, 800 Selfoss - 480-1951, forstöðumaður 480-1950
 www.zelsiuz.is